Eugene - Las Vegas, NV
Brian - London, Ontario, Canada
|
FakeTV á Íslandi |
|
FakeTV encourages the prowler to move on to an easier target |
FakeTV er þjófafæla sem líkir eftir birtunni frá
sjónvarpstæki. Birtan frá FakeTV breytist
óreglulega eins og birtan frá sjónvarpinu. Utanfrá
að sjá lítur út eins og einhver sé heima að horfa á
sjónvarpið, þannig að ef innbrotsþjófar hafa fengið
augastað á íbúðinni, þá ættu þeir að vera fljótir að
skipta um skoðun. |
Leiðbeiningar á Islensku, smellið á islenskar leiðbeiningar.
Smelltu hér til að sjá grein um FakeTV í Morgunblaðið
Þjófafæla sem líkir eftir sjónvarpi
Flestir kannast við flöktið sem sést í glugganum hjá nágrannanum þegar hann er að horfa á sjónvarpið. Innbrotsþjófar líta svo á að einhver sé heima þegar þeir sjá þetta flökt og fara eitthvert annað með iðju sína. En það sem þeir ekki vita er að sjónvarpsglampinn gæti allt eins verið frá nýrri gerð af þjófafælu, FakeTV. Þetta tæki líkir nákvæmlega eftir flöktinu frá sjónvarpinu, þannig að utan frá að sjá lítur svo út sem einhver sé heima að horfa.
FakeTV er lítill og nettur ljósgjafi með björtum marglitum ljósdíóðum. Tölvukubbur breytir styrk ljósanna í sífellu og við það myndast breytileg birta sem virkar nákvæmlega eins og flökt frá sjónvarpi. Birtubreytingin frá FakeTV líkir eftir því sem fer fram á sjónvarpsskjánum – hvort sem það er skipting á milli myndskeiða, hreyfing eða annað sem birtist í útsendingunni.
Rithöfundurinn og uppfinningamaðurinn Blaine Readler á heiðurinn af FakeTV. “Við hjónin vorum að fara út að kvöldlagi og ég ákvað að hafa kveikt á sjónvarpinu til að láta svo líta út sem einhver væri heima. Ég talaði um að það væri leitt að eyða öllu þessu rafmagni og slíta út sjónvarpstækinu, þegar hugsanlegir innbrotsþjófar gætu ekki einu sinni séð skjáinn, heldur bara flöktið frá honum. Þessi pæling hvarf ekki úr huga mér allt kvöldið, það hlyti að vera til ódýrari leið til að láta svo líta út sem kveikt væri á sjónvarpinu.”
Readler hafði samband við Hydreon Corporation í Minnesota í Bandaríkjunum til að gera hugmyndina að veruleika. Rannsóknir hófust á því hvernig flökt frá sjónvarpstækjum virkar, hvernig ljósmagnið eykst og minnkar með óreglulegum hætti og hvaða litbrigði er þar að finna. Í framhaldinu var ráðist í forritun á tölvukubbi og fjölmargar prófanir gerðar þar til menn voru ánægðir.
Samanburðarrannsóknir voru gerðar á fjölda einstaklinga, sem voru látnir horfa á ljósglampa frá sjónvarpstæki og frá FakeTV. Niðurstaðan var sú að enginn gat séð muninn á þjófafælunni og raunverulegu sjónvarpstæki.
Ljóst er að innbrotsþjófar hafa lítinn áhuga á að ráðast til atlögu ef þeir halda að einhver sé heima. FakeTV er einkar áhrifaríkt til að skapa þá tilfinningu. Ýmsir stillingarmöguleikar eru á tækinu til að velja hvenær og hvernig kviknar á því og hversu lengi það er í gangi. Mælt er með notkun FakeTV til viðbótar við ýmsar aðrar ráðstafanir sem hafa gagnast vel sem innbrotavörn. Meðal annars má lesa ráðleggingar um það á www.oryggi.is
FakeTV þjófafælan fæst í Glóey, Ármúla 19 og kostar 9.990 kr.www.gloey.is
FakeTV er skrásett vörumerki Hydreon Corporation. Frekari upplýsingar á http://faketv.com/is/
Ljósmyndir í hárri upplausn er að finna á http://www.faketv.com/pressrelease